SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



l

Umhverfisstarf ferðaþjónustufyrirtækja - Grænn gróður

SAF hefur undir höndum efni frá Anne Maria Sparf sem eru niðurstöður MS verkefnis hennar í umhverfisfræði við Háskóla Íslands. Hefur hún gefið leyfi til að vitna í það efni.

Af hverju umhverfisstarf í ferðaþjónustu?
Ferðaþjónustan hefur stækkað ört á undanförnum árum en þar með hafa neikvæð umhverfisáhrif hennar einnig aukist. Erlendir ferðamenn hafa mestan áhuga á að upplifa hreina íslenska náttúruna. Þetta endurspeglast einnig í auknum kröfum til ferðaþjónustuaðila um góða frammistöðu í umhverfismálum. Flest bendir til að þessi þróun haldi áfram og að umhverfisvitund ferðamanna vaxi jafnt og þétt, eða jafnvel skyndilega. Það felur í senn í sér ógnun og tækifæri fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu.

Markmið umhverfisstarfs í fyrirtækjum er að draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar á umhverfið og samfélagið (bæði hérlendis og erlendis) og axla þannig hluta af sameiginlegri ábyrgð á verndun umhverfisgæða og jákvæðri samfélagsþróun, um leið og fjárhagslegur grundvöllur er styrktur til lengri tíma litið. Hugsanlegur ávinningur fyrirtækja sem taka skref til að bæta frammistöðu sina í umhverfismálum er m.a.:

  • Rekstarsparnaður
  • Bætt ímynd
  • Minni starfsmannavelta 
  •  Betri þjónusta 
  •  Betri ferlisstjórnun

= Bætt samkeppnishæfni og aukin arðsemi

Hvernig á að velja rétta kerfið?
Oft er besta leiðin til að ná árangri í umhverfismálum að byggja upp umhverfisstjórnunarkerfi og fá það vottað af óháðum aðila. Til að velja rétta kerfið þarf fyrirtækið að meta eftirfarandi atriði:

  • Hvaða merki/kerfi eru í boði innan geirans? 
  • Hver er útbreiðsla kerfisins? Er merkið traust?
  • Nýtist merkið við markaðssetningu? (Þekkja okkar viðskiptavinir merkið?)
  • Hversu hár er kostnaðurinn sem fylgir notkun?
  • Hversu einfalt er kerfið í notkun?
  • Hvaða áhrif hefur kerfið á frammistöðu í umhverfismálum?

Þegar kemur að því að velja hvaða umhverfisstaðall hentar þá hefur það reynst í sumum tilfellum erfitt þar sem staðlarnir eru margir og hafa mismunandi eiginleika. Flest ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi eru lítil eða meðalstór. Slík fyrirtæki þurfa kerfi sem er einfalt og auðvelt í notkun, ódýrt, krefst ekki mikils tíma í innleiðingu og rekstri, leiðir til sparnaðar og minnkar neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar. Auk þess er gott að meta eftirfarandi þætti:

  • Gefur staðallinn færi á að bera saman eigin frammistöðu í umhverfismálum, þ.e.a.s. árangur yfir lengri tíma?
  • Gefur staðallinn færi á samanburði við umhverfislega frammistöðu keppinauta?
  • Gefur staðallinn færi á samanburði við umhverfisstaðla og viðmið?
  • Gefur staðallinn færi á samanburði við bestu umhverfislegu viðmið?

Til að umhverfisstarfið beri árangur er ekki einungis mikilvægt að meta hvað er besta leiðin, heldur einnig að starfið hafi fullan stuðning stjórnenda fyrirtækisins ásamt nægilegum auðlindum á borð við fjármagn og tíma.


 





Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri