SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



Félagsmenn

Notendanafn:
Lykilorð:

Týnt lykilorð

Fjöldi ferðamanna í maí

Ferðamálastofa sér um talningu á ferðamönnum sem fara um Leifsstöð og er þar hægt að sjá skiptingu þeirra eftir þjóðerni. Niðurstöður fyrir maí liggja nú fyrir og þar með fimm fyrstu mánuðir ársins segir í frétt á heimasíðu Ferðamálastofu.

Alls fóru tæplega 36 þúsund erlendir gestir um Leifsstöð í maí, samanborið við rúmlega 34 þúsund í sama mánuði í fyrra. Fjölgunin nemur rúmlega 1.700 manns eða 5%. Inn í tölunum eru allir með erlent ríkisfang sem fara um flugstöðina og er vinnuafl því sem fyrr inn í þessum tölum.

Þróun á mörkuðum
Sé litið til helstu markaðssvæða Íslands þá er fjölgun frá Mið-Evrópu, samdráttur frá N.-Ameríku en fjöldi Norðurlandabúa og Breta er nánast óbreyttur á milli ára. Í kjölfar nýrrar flugleiðar á milli Íslands og Kanada má greina fjölgun þaðan og athygli vekur einnig veruleg aukning á milli ára frá Þýskalandi og Hollandi. Að sögn Davíðs Jóhannssonar, forstöðumanns skrifstofu Ferðamálastofu í Frankfurt, er jafnan talsvert um hópferðir í maí, bæði almenna ferðamenn og þá sem koma á ráðstefnur og í hvataferðir. Því getur fjöldinn sveiflast nokkuð á milli ára en ánægjulegt sé að sjá fjölgun nú. Þá megi væntanlega rekja hluta fjölgunarinnar til aukinnar afþreyingar í tengslum við sjóstangveiði á Vestfjörðum, sem er vinsæl meðal Þjóðverja.

Hér að neðan má sjá fjölda gesta um Leifsstöð í maí, skipt eftir þjóðerni. Heildarniðurstöður úr talningum Ferðamálastofu má finna hér á vefnum undir liðnum Talnaefni.

Erlendir gestir um Leifsstöð í maí 2007/2008
  2007 2008 Aukning/ fækkun milli ára (%)
Bandaríkin 4754 3357 -29,4
Bretland 4997 4935 -1,2
Danmörk 3016 3348 11,0
Finnnland 1077 1131 5,0
Frakkland 1471 1468 -0,2
Holland 1256 1739 38,4
Ítalía 429 404 -5,8
Japan 315 284 -9,8
Kanada 500 995 99,0
Kína 381 647 69,8
Noregur 3439 3011 -12,4
Pólland 1197 2050 71,3
Rússland 31 24 -22,6
Spánn 515 409 -20,6
Sviss 247 255 3,2
Svíþjóð 2911 3090 6,1
Þýskaland 2365 3095 30,9
Önnur lönd 5355 5739 7,2
Samtals 34256 35981 5,0



Tenglar


Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík - Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri