Á stjórnarfundi Samtaka ferðaþjónustunnar 25. ágúst 2005 var tekin sú ákvörðun að láta taka viðtöl við frumherja í íslenskri ferðaþjónustu og setja viðtölin á heimasíðu SAF. Áður höfðu farið fram miklar umræður um kosti þess og galla að gefa út bók um sögu ferðaþjónustunnar. Það var því niðurstaðan að gefa út netbók en þá gefst fólki kostur á að lesa viðtölin án kostnaðar og prenta út viðtöl að vild. Kosturinn er enn fremur sá að alltaf er hægt að bæta við viðtölum enda mikill fjöldi fólks sem áhugavert væri að ræða við til viðbótar. Samtökin fengu Steinar J. Lúðvíksson, rithöfund, til að taka viðtölin við þá 16 frumherja sem birtast nú á heimasíðunni 6. nóvember 2008. Gullveig Sæmundsdóttir tók viðtölin við Íslaugu Aðalsteinsdóttur og Rögnu Samúelsson.
Á árunum 1980-1981 tók Sigurður Magnússon, fyrrverandi blaðafulltrúi Loftleiða, viðtöl við 12 frumherja í hótel- og veitingarekstri fyrir Samband veitinga- og gistihúsa. Þau viðtöl urðu síðan góður grunnur að bókinni „Gestir og gestgjafar“ sem SVG gaf út á 50 ára afmæli sínu árið 1995. Þessi viðtöl birtast nú á heimasíðu SAF til viðbótar við hin nýteknu viðtöl.
Það er Samtökum ferðaþjónustunnar mikil ánægja að birta þessi viðtöl nú á heimasíðu sinni, bæði ný viðtöl og gömul og vonast til þess að geta bætt við smám saman og að þau verði til framtíðar gagnlegt innlegg í sögu ferðaþjónustunnar, hvernig og hvenær sem hún verður skrifuð.
Tvö ný viðtöl
- tekin á árunum 2010-2011 af Kjartani Lárussyni.
Nýju viðtölin
- tekin á árunum 2006-2008 af Steinari J. Lúðvíkssyni, rithöfnundi og Gullveigu Sæmundsdóttur, ritstjóra.
Már Sigurðsson
Óskar Sigurjónsson
Gömlu viðtölin
- tekin á árunum 1980-1981 af Sigurði Magnússyni, fyrrverandi blaðafulltrúa Loftleiða.