SAF

Samtök ferðaþjónustunnar

The Icelandic Travel Industry Association



Saga ferðaþjónustunnar
Starfsmanna handbók

Félagsmenn

Notendanafn:
Lykilorð:

Týnt lykilorð

Fréttabréf SAF

Skráðu þig á póstlistann okkar til að frá Fréttabréf SAF sent til þín í tölvupósti

Netfang: *

Nafn:


Stjórnendahandbók SAF

Stjórnendahandbók Samtaka  ferðaþjónustunnar er unnin í samstarfi við HRM Rannsóknir & ráðgjöf. Handbókin er unnin með styrk frá Starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins.

Markmið þessarar handbókar er að vera leiðbeinandi fyrir stjórnendur fyrirtækja í ferðaþjónustu varðandi faglega starfsmannastjórnun. Gert er ráð fyrir að aðildarfyrirtæki Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) geti notað handbókina til að auka skilvirkni og gæði á sviði starfsmannamála. Í lok handbókarinnar er einnig komið inn á efnisþætti sem stjórnendur geta notað sem grunn að starfsmannahandbók þ.e. handbók um stefnu, starfsreglur, samskipti og ábyrgð stjórnenda og starfsfólks.
 Við gerð handbókarinnar var miðað við að gera skil helstu atriðum stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar. Fjallað er um þætti sem snúa að áætlanagerð og öflun umsækjenda, starfsmanna-vali og ráðningum, móttöku og þjálfun nýliða, fjallað um frammistöðumat og starfsmanna-samtöl og að lokum starfsþróun. Í þessari bók er ekki fjallað sérstaklega um umbun til starfsmanna, frammistöðumat né starfsþróun og ekki leitast við að fjalla um stefnumótun, eða hlutverk og stefnu fyrirtækja. 

Sjá handbókina á pdf formati hér

Sjá handbókina sem word skjal hér

Eyðublöð á word :

Eyðublað 1       Dæmi um starfsgreiningu fyrir starfsmann í gestamóttöku

Eyðublað 2      Rammi fyrir gerð starfsgreininga - móttökustjóri á sumarhóteli

Eyðublað 3      Dæmi um starfslýsingu starfsmanns í gestamóttöku

Eyðublað 4      Rammi fyrir gerð starfslýsinga

Eyðublað 5      Dæmi um viðtalsramma/ spurningar fyrir ráðningarviðtal

Eyðublað 6      Starfsmannasamtal - undirbúningsblað starfsmanns

Eyðublað 7      Starfsmannaviðtal - undirbúningsblað stjórnanda






Samtök ferðaþjónustunnar - Borgartúni 35, 105 Reykjavík -Sími 511 8000 - Símbréf 511 8008 - info@saf.is - Vefstjóri