|
Samtök ferðaþjónustunnar |
|
Hættum að strita fyrir ekki neitt
-Ræða Andra Más Ingólfssonar, forstjóra
Heimsferða á aðalfundi SAF, Samtökum ferðaþjónustunnar Ef við lítum
til baka – til sögu fjárfestinga í ferðaþjónustu þá blasir við að margir hafa
viljað láta að sér kveða en fráleitt hafa allar ferðir verið til fjár. Við
minnumst ferðaskrifstofa, hótela, bílaleiga, flugfélaga sem ekki eru
starfrækt í dag. Arðsemi fjárfestinga hefur ekki verið næg. Við höfum nálgast
ferðaþjónustu – mörg hver – á röngum forsendum. Fólk hefur lagt
hart að sér – ár eftir ár, án þess að arðsemi hafi verið ásættanleg, með
vonina eina í brjósti. Því miður með lítt raunhæfar áætlanir og við höfum
sætt okkur við lélega afkomu. Þá hafa fjölmargir átt erfitt með að vinna
saman innan greinarinnar. Við þurfum að breyta
þessu – skapa sterkar einingar, hótel, ferðaskrifstofur, afþreyingarfyrirtæki
sem eru eignalega sterk til þess að byggja til framtíðar. Við þurfum að vinna
ötullega að því að opna nýja markaði, - afþreyingu fyrir ferðamenn og hækka
þær tekjur sem við höfum af ferðamönnum. Ferðaþjónusta í eðlisínu er
sveiflukennd. Þess vegna þurfa fyrirtækin að vera sveigjanleg til þess að
geta þrifist. Af hverju er
framtíðin svona spennandi? Af hverju er
framtíðin þá svona spennandi? Það er vegna þess að ferðaþjónustan er sú
atvinnugrein í heiminum sem vex hraðast. Ferðamönnum til Íslands hefur
fjölgað ár frá ári og við höfum miklar væntingar til framtíðarinnar. Fáar
greinar hafa vaxtamöguleika ferðaþjónustunnar. En við fáum ekki notið vaxtar
nema breyta kúltúr fyrirtækjanna okkar – breyta hugarfari okkar. Ég verð að
játa að mér fyndist nöturlegt ef við eftir fimm ár – og yfir 400 þúsund
ferðamenn, búum ennþá við ömurlega afkomu. Þá er kúrsinn kolrangur. Við verðum að taka okkur tak – breyta
hugarfari okkar. Hvað er áhugavert við að búa til stórar einingar? Það er eðlilegt
að spurt sé: hvað er áhugavert að búa til stórar einingar? Jú, fyrirtæki hafa
þá bolmagn – að því tilskildu að þau séu öflug og sterk – til þess að koma
fram með nýjungar. Þróa nýja vöru, eins og markaðsfræðingar segja. Við þurfum að
finna jafnvægi framboðs og eftirspurnar eftir mörkuðum – Evrópu, Ameríku,
Asíu og markaðssvæði innan þessara heimsálfa. Við þurfum að finna markaði og
tímabil. Þá á ég við að laga markaðssetningu að árstíðunum fjórum. Fyrirtækin
þurfa að hafa fjölbreytta “körfu” að bjóða úr. Árum saman voru
leiðandi ferðakskrifstofur reknar með tapi. Það þótti ásættanlegt á þeim
tíma, en sá tími er liðinn. Við megum ekki sætta okkur við taprekstur. Hótel í miðbæ Reykjavíkur Það er von að
spurt sé af hverju ég sé að fjárfesta í stóru hóteli í miðbæ Reykjavíkur. Það
hafi verið stöðugt tap, ekki satt? – segir fólk. Að baki kaupum á húsi
Eimskipafélags Íslands við Pósthússtræti eru vandlega ígrundaðar ástæður:
Hótelið verður
opnað í mars 2005. Mikill vöxtur, miklir möguleikar Það er mikill
vöxtur í ferðaþjónusta – ekki bara ér á landi, heldur um allan heim.
Tækifærin eru til staðar. Við þurfum að nálgast þau af fagmennsku og einurð.
Við verðum að komast út úr sjálfheldu tapreksturs. Aðgangshindranir virka
ekki lengur – hindranir sem settu mjög svip sinn á markaðinn. Við þurfum því
að vinna saman, því sameinuð verðum við sterkari. Því segi ég:
Hættum að strita fyrir ekki neitt. Byggjum upp öflug fyrirtæki sem verði
eftirsótt af fjárfestum; fyrirtæki sem gefi eigendum arð og starfsfólki
örugga atvinnu. |
|
© SAF - Samtök ferðaþjónustunnar |