|
Samtök ferðaþjónustunnar |
|
Ræða Matthíasar Kjartanssonar SAF 26. mars 2004 Ágætu félagar. Drottinn fékk eina viku til að skapa
heiminn. Okkur þrem er falið að
redda ferðaþjónustunni á Íslandi á 5 mínútum, sem er ólíkt flóknara dæmi að
mínu mati. Hvað viljum við? Hvað vil ég? Við rúmstokkinn hef ég bænaskjal sem ég les
reglulega. Það er mín heitasta ósk að smátt og smátt verði hægt að ýta á
“delete” takkann og afmá liði sem ekki er nein þörf fyrir lengur. Sjálfsagt móðga ég einhverja en
vonandi hreyfi ég við öðrum og er þá tilgangnum náð að mínu mati. ·
Ég vil fagmennsku í atvinnugreininni. ·
Ég vil afþreyingaraðila eða byrgja sem ekki
stela af mér kúnnum við fyrsta mögulega tækifæri. ·
Ég vil afþreyingaraðila eða byrgja sem ekki
standa í tilboðum og/eða undirboðum beint til minna kúnna á sama tíma og þeir
koma til mín og forundrast yfir því að viðskipti okkar við þá hafi dvínað
milli ára. ·
Ég vil að hótelrekendur, veitingamenn,
afþreyingaraðilar og byrgjar gefi mér að minnsta kosti sama verð og skilmála
og þeir gefa erlendum aðilum og hætti að hygla útlendum umfram innlenda
kaupendur. ·
Ég vil afþreyingaraðila eða byrgja sem eru með
nægjanlegt rekstrarfé og þurfi ekki að leita til mín með fyrirframgreiðslur
mörgum mánuðum fyrir komu gesta svo hægt sé að leysa út tæki og tól eða
stugga við innheimtumönnum ·
Ég vil afþreyingaraðila eða byrgja sem eru með
nægjanlegt rekstrarfé til þess að þurfa ekki að mæta á þröskuldinn hjá mér,
eldsnemma morguns sama dag eða daginn eftir að þjónustan er eða var veitt,
til að rukka. ·
Ég vil að flokkunarkerfi gististaða verði
stokkað upp og gististaðir flokkaðir bæði huglægt og áþreifanlega. ·
Ég vil að hið opinbera, sem á að fara með
eftirlit með ferðaþjónustunni, sjái til þess að ALLIR séu með ALLAR þær
tryggingar sem þeir eiga að vera með skv. lögum. ·
Ég vil að þeir sem ekki eru með þær tryggingar
sem lög kveða á um verði stöðvaðir strax og meinað að halda uppi
áframhaldandi starfsemi en ekki gefinn frestur til að “kippa málunum í lag”. ·
Ég vil að eftirlitsaðilar sem eiga að fylgjast
með t.d öryggisatriðum geri það og ef öryggisatriðum er ekki framfylgt, verði
fyrirtækjum lokað og háum sektargreiðslum beitt. Lögin eiga að vera það
skýr að það sé ekki nein ástæða linkindar í þessum málum. “Ef þú keyrir
fullur, missirðu skírteinið”. Punktur.
Engin aðlögun, enginn frestur veittur til að kippa þessu í lag. ·
Ég vil að ferðaþjónustan, ekki síst á
landsbyggðinni, dafni á eigin forsendum í frjálsu markaðsumhverfi og byggi á
hugmyndum, frumkvæði og drifkrafti heimamanna en sé ekki á framfæri
Byggðastofnunar eða sambærilegra fyrirgreiðslustofnana fyrir tilstuðlan
misviturra pólitíkusa á atkvæðaveiðum. ·
Ég vil að ferðaþjónustan á landsbyggðinni verði
ekki fjármögnuð með styrkjum umfram ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og að
allir verði í því efni jafnir fyrir lögunum. ·
Ég vil að ferðaþjónustan á landsbyggðinni
sættist við ferðaþjónustuna á höfuðborgarsvæðinu. ·
Ég vil að hótel verði reist um allt land á
forsendum undanfarandi kannanna sem spyrji hvort raunhæft sé fjárhagslega að
reka hótel á þessum stað allt árið, ekki eingöngu á háönn, og að gerðar verði
raunhæfar tekjuáætlanir sem unnar verði í samvinnu við markaðs- og söluaðila. ·
Ég vil að farið verði að reka
ferðaþjónustufyrirtæki á forsendum arðsemi eigins fjár ekki bara vegna þess
að “það sé svo gaman” að starfa við ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan er ekki skemmtiiðnaður fyrir eigendur og
starfsfólk þjónustufyrirtækjanna. ·
Ég vil að hópferðabílar sem mér er boðið upp á
verði flokkaðir og verðlagðir eftir aldri og gæðum. ·
Ég vil að aðstæður skapist til frekari
úreldingar eldri hópferðabíla. ·
Ég vil að tilboðsbeiðnum og bókunum frá mér
verði svarað. ·
Ég vil að tilboðsbeiðnum og frá mér verði svarað
innan sólarhrings svo við getum staðið undir okkar loforðum um að skila af
okkur tillögum og tilboðum innan sólarhrings frá móttöku. ·
Ég vil að fleiri flugfélög fari að fljúga til og
frá landinu svo ferðatíðni aukist og verð hugsanlega lækki til hagsbóta fyrir
alla þjónustuaðila, ekki síst ferðamennina sjálfa. ·
Ég vil að ferðatíðni til meginlands Evrópu
aukist utan háannar svo hægt verði að bjóða erlendum skipuleggjendum
fjölbreytt úrval brottfararstaða til landsins og fjölbreyttan brottfarartíma
frá landinu sem krefst þess ekki að vaknað sé um miðja nótt til að ná flugi. ·
Ég vil að allir hér inni skilji að ferðaþjónusta
er meira en bara það eitt að
setja upp skilti við þjóðveginn. ·
Ég vil að allir hér inni skilji að ferðaþjónusta
er nákvæmlega þetta – þjónusta, ekki bara vara uppi í hillu og þaðan af síður
iðnaður. ·
Ég vil að látið verði af því að kalla
ferðaþjónustuna ferðamannaiðnað, eða þess þá heldur ferðamannaútveg, og að
allir skilji að þetta er fyrst og fremst þjónusta sem aflar þjóðarbúinu
mikilla tekna, mikils gjaldeyris og skapar mikla atvinnu. ·
Ég vil að laun starfsfólks í ferðaþjónustu nái
því bráðlega að jafnast á við laun annarra starfsstétta í þjóðfélaginu og að
starfsfólk í ferðaþjónustu verði ekki láglaunastétt um ókomin ár, líkt og
verið hefur. ·
Ég vil að við menntun fólks í ferðamálum verði
hamrað á því að menntun sé EKKI æðri reynslu ·
Ég vil að menntahroki sk. ferðamálafræðinga
verði aflagður með öllu. ·
Ég vil að hætt verði að telja ferðamenn á þeim
forsendum sem það er gert í dag og að farið verði að telja eða áætla tekjur
af þeim frekar. ·
Ég vil að rannsóknastofnanir ferðaþjónustunnar,
ef þær eru þá einhverjar, Hagfræðistofnun Háskólans og aðrir einbeiti sér að
því að finna leið til að nálgast upplýsingar um hverjar tekjur okkar séu af
ferðaþjónustunni svo hægt verði að leggja þessa Leifsstöðvartalningu af. ·
Ég vil að ferðaþjónustan á Íslandi vaxi og dafni
um ókomin ár og verði viðurkennd og skilgreind sem atvinnugrein, atvinnugrein
sem er talað um af alvöru og festu, ekki bara nefnd og hampað á tyllidögum
eða í áramótapistlum ráðamanna. ·
Ég vil óska ferðaþjónustunni gleðilegs ferðaárs
og að tekjur okkar þetta árið verði umfram kostnað. |
|
© SAF - Samtök ferðaþjónustunnar |