Málsvari íslenskrar ferðaþjónustu
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) voru stofnuð 11. nóvember 1998 og eru hagsmunasamtök allra fyrirtækja sem starfa í ferðaþjónustu. Samtökin voru byggð á grunni Sambands veitinga- og gistihúsa og lögðu önnur hagsmunasamtök sem störfuðu innan ferðaþjónustunnar niður starfsemi sína á sama tíma.
Meginhlutverk SAF er að gæta sameiginlegra hagsmuna félagsmanna sinna, vinna að því að fyrirtækin búi við starfsskilyrði sem gera þau samkeppnishæf á alþjóðamarkaði og stuðla að því að ferðaþjónusta á Íslandi byggi á virðingu fyrir landi og þjóð. Þá vilja samtökin stuðla að heilbrigðri samkeppni í íslensku atvinnulífi og að nýsköpun og fagmennska séu stoðir sem framtíð ferðaþjónustunnar hvíli á. SAF er sameiningartákn og talsmaður fyrirtækja í ferðaþjónustu og vilja að samkeppnishæf rekstrarskilyrði og heilbrigð samkeppni sé tryggð.
Nánari upplýsingar um tilgang samtakanna er að finna í lögum SAF.
Í dag er fjöldi fyrirtækja í SAF. Það eru flugfélög, ferðaskrifstofur, gististaðir, veitingahús, bílaleigur, hópbifreiðafyrirtæki, afþreyingarfyrirtæki svo og önnur fyrirtæki sem telja sig til ferðaþjónustufyrirtækja.
SAF starfa með öðrum hagsmunasamtökum og eru þau ein af 8 aðildarsamtökum Samtaka atvinnulífsins sem stofnuð voru 15. september 1999 með samruna Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambandsins.
Með stofnun SAF talar ferðaþjónustan einni röddu gagnvart stjórnvöldum, fjölmiðlum svo og öðrum sem ferðaþjónustufyrirtæki skipta við og er stefna SAF í hinum ýmsum málum unnin á vegum stjórnar og nefnda, en innan samtakanna starfa 7 fagnefndir. Þar að auki starfa þverfaglegar nefndir s.s. umhverfisnefnd, nethópur svo og fleiri nefndir sem sinna sérstökum verkefnum.
Aðalfundur SAF hefur æðsta vald í málefnum samtakanna en 7 manna stjórn stýrir málum milli aðalfunda.
SAF er umsagnaraðili um lagafrumvörp og reglugerðartillögur og eiga samtökin fulltrúa í fjölmörgum nefndum, stjórnum og ráðum bæði á vegum opinberra aðila og annarra. Á þann hátt hafa samtökin áhrif á starfsumhverfi fyrirtækjanna.
Skrifstofa SAF er til húsa í Borgartúni 35, 3. hæð, 105 Reykjavík, sími 591 0000 og er opin 08:30-16:30