Í maí funda Samtök atvinnulífsins með félagsmönnum samtakanna um allt land. Á fundunum verður rætt um efnahagsmálin, komandi kjaraviðræður og það sem helst brennur á forsvarsmönnum fyrirtækja.
Fundirnir verða tvískiptir. Í fyrri hluta fundanna förum við yfir efnahagsmálin og fáum innlegg félagsmanna í komandi kjaraviðræður. Auk þess verður vinna fulltrúaráðs SA í aðdraganda kjarasamninga kynnt.
Seinni hluti fundanna er í formi fræðslu á vegum sérfræðinga vinnumarkaðssviðs SA þar sem starfsmanna- og kjaramál verða rædd.
Eru félagsmenn í Samtökum ferðaþjónustunnar hvattir til að mæta á fundina.
Skráning á fundina er hafin á SA.is og við vonumst til að sjá sem flesta.
Dagskrá hringferðarinnar:
- 5. maí – Borgarnes – Landnámssetrið
- 10. maí – Ísafjörður – Menningarmiðstöðin Edinborg
- 12. maí – Akureyri – Hótel KEA
- 17. maí – Vestmannaeyjar – Salur Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja
- 18. maí – Selfoss – Hótel Selfoss
- 25. maí – Egilsstaðir – Icelandair Hótel Hamar
- 31. maí – Reykjavík – Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35