Afmælisráðstefna SAF er haldin á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 15. nóvember 2023, kl. 13-17, undir yfirskriftinni “Samtaka í 25 ár.”
Í tilefni af 25 ára afmæli samtakanna fylgir 48 síðna efnismikið afmælisblað með Viðskiptablaðinu í dag.
Smellið hér til að lesa afmælisblaðið.
Afmælisráðstefnan hefst í ráðstefnusal Hilton Nordica kl. 13:00 í dag, en húsið opnar fyrir kynningartorg fyrirtækja, kaffisopa og afhendingu ráðstefnugagna kl. 12:00. Deginum lýkur svo með skemmtilegum afmælisfögnuði og netagerð undir tónlist og léttum veitingum.
Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar, þemu, lotufyrirkomulagið, umfjöllunarefni, fyrirlesara, umræðupanela og tímasetningar er að finna hér: Dagskrá afmælisráðstefnu SAF 2023. Við hlökkum til að sjá ykkur!

Samtaka í 25 ár!
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) voru stofnuð 11. nóvember 1998 og eru hagsmunasamtök allra fyrirtækja sem starfa í ferðaþjónustu. Samtökin voru byggð á grunni Sambands veitinga- og gistihúsa (SVG), sem stofnuð voru árið 1945 og lögðu önnur hagsmunasamtök sem störfuðu innan ferðaþjónustunnar niður starfsemi sína á sama tíma. Á þessum tímamótum voru hátt í 200 aðilar að SVG sem gengu til liðs við SAF sem í dag telur um 400 fyrirtæki í ferðaþjónustu í öllum geirum greinarinnar um allt land.
Meginhlutverk SAF er að gæta sameiginlegra hagsmuna félagsmanna sinna gagnvart stjórnvöldum, vinna að vexti og viðgangi greinarinnar og því að fyrirtækin búi við starfsskilyrði sem gera þau samkeppnishæf á alþjóðamarkaði, og stuðla að því að ferðaþjónusta á Íslandi grundvallist á virðingu fyrir landi og þjóð.
Í dag er fjöldi ólíkra fyrirtækja í SAF. Þar eru flugfélög, ferðaskrifstofur, gististaðir, veitingahús, bílaleigur, hópbifreiðafyrirtæki, afþreyingarfyrirtæki, tæknifyrirtæki, viðburðafyrirtæki og fleiri fyrirtæki sem með margvíslegum hætti telja sig til ferðaþjónustufyrirtækja. SAF starfa með öðrum hagsmunasamtökum og eru þau ein af 6 aðildarsamtökum Samtaka atvinnulífsins sem stofnuð voru 15. september 1999 með samruna Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambandsins.
Stefna SAF í hinum ýmsum málum unnin á vegum stjórnar og nefnda. Innan samtakanna starfa átta fagnefndir sem hver um sig sinnir málefnum sinnar greinar innan ferðaþjónustunnar.
Með stofnun og starfi SAF hefur íslensk ferðaþjónusta talað einni röddu gagnvart stjórnvöldum, fjölmiðlum svo og öðrum sem ferðaþjónustufyrirtæki skipta við í 25 ár. Styrkur þess að atvinnugreinin komi sameinuð fram út á við um hagsmunamál sín er óumdeildur eins og fjölmörg dæmi um árangur í hagsmunamálum greinarinnar á liðnum aldarfjórðungi sýna.