[:IS]Háskóli Íslands og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hafa gert með sér samning um hæfnigreiningu sex starfa er tengjast skipulagningu fagháskólanáms við skólann. Um er að ræða störf í ferðamennsku, leikskólafræði og heilbrigðisgagnafræði en til stendur að hæfnigreina síðar störf í iðn- og tæknigreinum. Fagháskólanám er starfstengt nám á fræðasviði háskóla. Niðurstöður úr hæfnigreiningu starfa eru nýttar til að skipuleggja fagháskólanám og við þróun raunfærnimats. Raunfærnimat snýst um að meta færni umsækjanda og bera hana saman við hæfniviðmið tiltekinna námskeiða. Slíkt mat er notað víða erlendis bæði við inntöku í nám og til styttingar náms. Með fagháskólanámi verður til aukið námsframboð fyrir einstaklinga á vinnumarkaði til að þróa sig í starfi og afla sér menntunar við hæfi.
Á mynd, Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. MYND/Kristinn Ingvarsson
Sjá nánar hérhttp://frae.is/frettir/hi-og-fa-gera-samning-um-haefnigreiningar/[:]