Sjálfbærnisaga áfangastaðarins Íslands

Sjálfbærnisaga áfangastaðarins Íslands

Sjálfbærnisaga áfangastaðarins Íslands

Vinnustofa í Grósku í Reykjavík 16. maí kl. 11.00

Vilt þú skrifa kafla í sjálfbærnisögu fyrir áfangastaðinn Ísland? Íslandsstofa og Íslenski ferðaklasinn í samstarfi við Ferðamálastofu og Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til vinnustofu þriðjudaginn 16. maí. Einnig verða kynntar niðurstöður Nordplus rannsóknar um viðskiptamódel í ferðaþjónustu, þar sem Ísland, Danmörk og Lettland var skoðað.

Síðasta haust fór af stað vinna við að skilgreina sjálfbærnisögu áfangastaðarins Íslands í samvinnu Íslandsstofu og Íslenska ferðaklasans. Haldin var vinnustofa með ferðaþjónustufyrirtækjum sem sænska ráðgjafafyrirtækið Kairos Future stýrði og vann síðan skýrslu upp úr vinnunni. Niðurstöðurnar voru kynntar á Degi ábyrgar ferðaþjónustu í lok árs. Haldinn var fundur með rýnihóp í apríl og nú er boðað til opinnar vinnustofu þar sem stefnt er að því að klára vinnuna.

Hvenær: Þriðjudaginn 16. maí kl. 11.00-15.00

Hvar: Sykursalur, Grósku, Bjargargötu 1 – hádegismatur í boði

SKRÁNING

Dagskrá vinnustofunnar:

  • 10:30-11:00 Morgunkaffi og skráning
  • 11:00-11:10 Kynning á verkefninu „Sjálfbærnisaga áfangastaðarins Íslands”
    • Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu
  • 11:10-11:30 Leifturræður – eldmóður, innblástur, kraftur.
    • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska Ferðaklasans
    • Andrés Jónsson, Icelandair
    • Eva María Lange, Pink Iceland
  • 11:30-12:30 Vinnustofa stýrt af Kairos Future
    • Johanna Danielsson & Karl Johan Tegnér
  • 12.30-13:00 Hádegismatur
  • 13:00-14:30 Vinnustofa Kairos Future – framhald
  • 14:30-15:00 Kynning á Nordplus verkefni – samstarf Lettlands, Danmerkur og Íslands; Viðskiptamódel ferðaþjónustu post-corona eða “Business Models post-corona in the hospitality industry”
    • Olga Zvereva, Riga Hotel School
    • Bettina Lyngdal Baumgarten, Dania Academy
    • Björn Marleir Sigurjónsson, Dania Academy

Skoða skýrslu Kairos Future um Sjálfbærnisögu áfangastaðarins Íslands (pdf)

Date

16 maí 2023

Time

11:00 - 15:00

Staðsetning

Gróska

Skipuleggjendi

Íslandsstofa og Íslenski ferðaklasinn