SAF fordæma óábyrga afstöðu ASÍ

Nú er komið formlega fram að Alþýðusamband Íslands hefur hafnað málaleitan Samtaka atvinnulífsins um að leita leiða til að draga tímabundið úr launakostnaði fyrirtækja. ASÍ vill þannig hvorki ljá máls á frestun launahækkana né tímabundinni lækkun mótframlags í lífeyrissjóði. Óformlegar viðræður við ASÍ um þetta hafa staðið yfir um nokkurra vikna skeið án árangurs og formlegt erindi var sent frá SA til ASÍ þann 30. mars. Því erindi hefur nú verið svarað neitandi.

Samtök ferðaþjónustunnar fordæma þessa afstöðu enda verður neitun ASÍ ekki skilin á annan hátt en að verkalýðshreyfingin skorist undan ábyrgð sinni og hyggist ekki leggjast á árarnar með stjórnvöldum og atvinnulífinu á neinn hátt í þeirri lífsbaráttu sem íslensk ferðaþjónusta og efnahagslíf í heild stendur frammi fyrir næstu mánuði og ár.

Neitun ASÍ á sanngjarnri málaleitan SA sýnir að ekki er lengur hægt að treysta á að ASÍ sýni ábyrgð í þeim grafalvarlegu aðstæðum sem samfélagið glímir nú við sem heild, gerólíkt því sem áður var.

Óbilgjörn afstaða ASÍ sýnir þannig fullkomið tómlæti gagnvart hlutverki samtakanna sem ábyrgðaraðila á vinnumarkaði og mikilvægs samstarfsaðila stjórnvalda og atvinnurekenda á fordæmalausum tímum í Íslensku efnahagslífi.

Þá er ljóst að afstaða ASÍ mun óhjákvæmilega leiða til verri fjárhagsstöðu fyrirtækja í ferðaþjónustu sem nú glíma við lamandi aðstæður, með fullkomnu tekjutapi framundan um margra mánaða skeið og gríðarlegum lausafjárskorti.

Það er óskiljanlegt með öllu hvernig forysta ASÍ getur komist að þeirri niðurstöðu að tekjulaus fyrirtæki geti uppfyllt launahækkanir á tímum sem þessum. SAF benda á að mjög stór hluti þeirra umsókna um 25 þúsund umsóknir um hlutaatvinnuleysisbætur sem borist höfðu vinnumálastofunun  í gær voru frá ferðaþjónustufyrirtækjum og starfsfólki þeirra, sem sýnir svart á hvítu hve alvarleg staðan er í greininni.

Ákvörðun ASÍ vinnur beinlínis gegn markmiðum aðgerða stjórnvalda um að styðja við atvinnulíf og að gera fyrirtækjum eins og kostur er kleift að halda ráðningarsambandi við starfsfólks.

SAF telja því augljóst að afstaða ASÍ muni því miður koma niður á félagsmönnum sambandsins þar sem óhugsandi er að ferðaþjónustufyrirtæki geti nú uppfyllt launahækkanir nema með frekari niðurskurði á launakostnaði, m.a. með enn frekari uppsögnum.

Samtök ferðaþjónustunnar skora á Alþýðusamband Íslands að breyta afstöðu sinni.

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF

Tengdar fréttir

Fimmtudaginn 25. september sl. bauð afþreyingarnefnd Samtaka ferðaþjónustunnar til félagsfundar undir yfirheitinu „Öryggismál í ævintýraferðaþjónustu“. Tilefni fundarins var m.a. sú umræða sem …

Ferðaþjónustudagurinn 2025 fer fram í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 23. október kl. 14.00.  Á Ferðaþjónustudeginum verður rætt um ferðaþjónustu með tilliti til …

Vissir þú að framleiðni í hótel- og veitingarekstri óx þrefalt hraðar en í hagkerfinu í heild á síðustu fimm árum? Og það …

Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök hafa opnað fyrir tilnefningar til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2025. Hvetja samtökin aðildarfyrirtæki til að senda inn tilnefningar eigi síðar …

Vesturland sótt heim

Á dögunum gerðu Samtök ferðaþjónustunnar víðreist um Vesturland þar sem formaður og starfsfólk samtakanna hittu fyrirtæki í ferðaþjónustu, forystufólk í sveitarstjórnum og …

Fjöldi kvenna í ferðaþjónustu komu saman í Gamla kvennaskólanum sl. miðvikudag til þess að fagna upphafi verkefnisins Konur í ferðaþjónustu sem Samtök …