Bjarnheiður Hallsdóttir endurkjörin formaður SAF

Bjarnheiður Hallsdóttir
Formaður SAF

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2020 fór fram í gær við heldur óvenjulegar aðstæður, en fundurinn fór fram í netheimum að þessu sinni.

Í aðdraganda aðalfundar fór fram kjör í stjórn SAF fyrir starfsárin 2020 – 2022 ásamt því að kjörinn var formaður.

Í fyrsta skipti í sögu SAF fóru kosningar á aðalfundi fram með rafrænum hætti. Fyrirtækið Könnuður ehf. annaðist kosninguna fyrir hönd SAF, en hún fór fram í gegnum Þínar síður Húss atvinnulífsins.

Samkvæmt lögum SAF skal stjórnarkjöri þannig háttað að annað hvert ár skal kjósa formann og þrjá meðstjórnendur en hitt árið eru hinir þrír meðstjórnendurnir í kjöri.

Fyrir í stjórn SAF eru Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair Group, Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri Radisson Blu Hótel Sögu og Jakob Einar Jakobsson, framkvæmdastjóri Jómfrúarinnar. Hlutu þau kjör í stjórn SAF á aðalfundi árið 2019 .

Eitt framboð barst í formannsembætti SAF og var Bjarnheiður Hallsdóttir endurkjörinn formaður samtakanna til næstu tveggja ára.

Sex frambjóðendur voru í kjöri um þrjú stjórnarsæti í SAF.

Niðurstaða í stjórnarkjöri á aðalfundi SAF 2020

Aðalmenn í stjórn SAF starfsárin 2020 – 2022:

  • Ívar Ingimarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Ferðaþjónustunnar Óseyri, hlaut 70.563 atkvæði eða 87,28%
  • Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða – Reykjavik Excursions, hlaut 54.061 atkvæði eða 66,87%
  • Hallgrímur Lárusson, eigandi og framkvæmdastjóri Snæland Grímsson, hlaut 46.085 atkvæði eða 57,00%

Aðrir frambjóðendur fengu færri atkvæði.

Varamenn í stjórn SAF starfsárið 2020- 2021:

  • Ólöf Einarsdóttir, eigandi Mountaineers of Iceland
  • Unnur Svavarsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri GoNorth
  • Ámundi Óskar Johansen, framkvæmdastjóri Veisluþjónustunnar – Rúgbrauðsgerðarinnar

Kosningaþátttaka félagsmanna í SAF var með ágætum, en greidd voru 80.847 atkvæði eða 52,24% atkvæðamagns.

SAF óska nýkjörnum formanni, stjórnarmönnum og varamönnum í stjórn til hamingju með kjörið.

Tengdar fréttir

Bein útsending frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …