Helgi Már Björgvinsson, yfirmaður alþjóðasamskipta hjá Icelandair
Helgi er yfirmaður alþjóðasamskipta hjá Icelandair. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1970 og hóf störf hjá Icelandair árið 1999 þar sem hann stýrði rekstri Icelandair Holidays í Norður-Ameríku en tók janframt við sem sölustjóri Norður-Ameríku árið 2000. Helgi varð sölu- og markaðsstjóri Icelandair í Bretlandi og Írlandi 2002, svæðisstjóri Suður-Evrópu 2004 og svæðisstjóri Bretlands og Írlands 2007.
Helgi gegndi stöðu framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Icelandair frá 2008 til 2017 og bar m.a. ábyrgð á markaðsdeild og viðskiptaþróun, rekstri söludeildar og sölusvæða, vildarklúbbi, tekjustýringu og verðlagningu, dreifingu og stafrænni þróun, sölu og þjónustu um borð auk reksturs þjónustuvers. Frá árinu 2017 hefur Helgi stýrt alþjóðasamskiptum fyrir félagið og samstarfi við önnur flugfélög og þar heyrir einnig undir sala- og markaðssetning á fjarmörkuðum.
Helgi situr í fjölda stjórna og ráða og má þar nefna framkvæmastjórn Airlines for Europe, ráðgjafaráði IATA Industry Affairs Advisory Council, fjárfestingaráði Icelandic Tourism Fund og í stjórnum Lindarvatns, Fransk-íslenska viðskiptaráðins og Norðurslóðaviðskiptaráðins. Auk þess hefur Helgi setið í Ferðamálaráði og stjórnum Iceland Naturally, Vildarbarna, Amadeus Ísland og Iceland Tours Ltd.
Helgi lauk BS gráðu í markað- og stjórnunarfræði frá University of South Carolina, Columbia, árið 1994 og MBA gráðu frá ESCP European School of Management, París, árið 2008.
Helgi er giftur Mörtu Jónsdóttur, deildarstjóra á skrifstofu prótokolls, menningar og viðskiptaþjónustu hjá utanríkisráðuneytinu og eiga þau tvo syni; Hinrik 14 ára og Kristján 12 ára.