Ferðaþjónusta og Alþingiskosningar 2024

Ferðaþjónusta og alþingiskosningar 2024

Á undanförnum 14 árum hefur ferðaþjónusta vaxið í eina mikilvægustu grundvallar atvinnugrein landsins. Greinin veitir rúmlega 30 þúsund manns atvinnu, býr til þriðjung allra gjaldeyristekna þjóðarinnar, skilar meira en 155 milljörðum króna í skatta til samfélagsins árlega. Ferðaþjónusta hefur umbylt efnahag Íslands með gjörbreyttri stöðu viðskipta við útlönd, stutt við gengi krónu og kaupmátt, skapað mikinn fjölda starfa og aukið fjölbreytni í atvinnutækifærum um allt land. Engum blöðum er um það að fletta að ferðaþjónusta hefur bætt lífskjör fólks í landinu verulega á síðustu árum.

Vegna þessarar mikilvægu undirstöðu lífskjara er mikilvægt að umræða og ákvarðanir um ferðaþjónustu byggi á gögnum og staðreyndum. Það á ekki síst við um kosningar til Alþingis. 

Staðreyndir um ferðaþjónustu

Til að styðja við árangursríka umræðu um ferðaþjónustu og auka þekkingu allra sem að koma á greininni hafa Samtök ferðaþjónustunnar tekið saman gögn og staðreyndir um nokkra þætti sem komið hafa til umræðu í tengslum við ferðaþjónustu á síðustu misserum. 

Svör stjórnmálaflokka um stefnu og aðgerðir í málefnum ferðaþjónustu

Í aðdraganda kosninga tóku samtökin viðtöl við forsvarsfólk stjórnmálaflokkanna þar sem leitast var við að leiða í ljós stefnu og áformaðar aðgerðir stjórnmálaflokkanna í málefnum ferðaþjónustunnar á næsta kjörímabili. Hægt er að horfa á öll viðtölin í spilunarlistanum hér að neðan, eða á Youtube rás SAF. Einnig er hægt að hlusta á viðtölin í hlaðvarpsformi, í Bakpokanum, hlaðvapi SAF  

Sameiginlegar kosningaáherslur Samtaka atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins standa fyrir kosningafund atvinnulífsins þann 7. nóvember n.k. með þátttöku formanna stjórnmálaflokkanna. Á fundinum verða sameiginlegar áherslur aðildarsamtaka SA fyrir kosningarnar kynntar og leiðtogum stjórnmálaflokkanna gefst tækifæri til að ræða áherslur og stefnu sinna flokka. Smellið hér til að skrá ykkur á fundinn.

 

Staðreyndir um ferðaþjónustu

Hér fyrir neðan eru fimm Infogram myndir sem hver og ein sýnir fimm staðreyndir um ferðaþjónustu sem tengjast lífskjörum, erlendu starfsfólki, húsnæðisverði, verðbólgu og virðisaukaskatti. Hægt er að skoða hverja mynd í fullri stærð, hlaða þeim niður eða deila á samfélagsmiðlum með því að smella á punktana þrjá sem birtast þegar farið er með músina yfir hverja mynd. Einnig er hægt að nálgast allar myndirnar á facebook síðu SAF.

Einnig má hlaða niður pdf skjali með ítarefni sem fer dýpkar upplýsingarnar um hverja staðreynd og gögnin sem byggt er á. 

 

Ítarefni um staðreyndir og gögn

Smellið á myndirnar hér fyrir neðan til að hlaða niður pdf skjali með ítarefni sem fer dýpra í upplýsingarnar um hverja staðreynd og gögnin sem byggt er á.