Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar

Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar eru afhent árlega fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan Samtaka ferðaþjónustunnar til nýsköpunar og vöruþróunar. Auk viðurkenningar hlýtur verðlaunahafi 300 þúsund kr. verðlaun.

Meðal markmiða Samtaka ferðaþjónustunnar er að nýsköpun og fagmennska innan greinarinnar tryggi arðsemi allt árið, enda byggi ferðaþjónustan á sterkri ímynd, gæðum, þekkingu og traustum innviðum. Auk þess segir í stefnu SAF að landið allt verði kynnt til eflingar ferðaþjónustu og að náttúra, mannlíf og menning landsins gegni lykilhlutverki. Hvatt er til aukinnar samvinnu innan greinarinnar til að styrkja enn frekar innviði og efla markaðssetningu landsins sem heildar.

Tekið er tillit til þessara þátta meðal annarra þegar tilnefningar eru metnar. Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar eru afhent í tengslum við afmæli SAF þann 11. nóvember ár hvert.  

Félagsmenn í SAF og aðrir áhugasamir um nýsköpun í ferðaþjónustu eru hvattir til að senda inn tilnefningar ásamt rökstuðningi. Vinsamlegast sendið tilnefningar inn fyrir 8. nóvember 2023.

Aðildarfélögum SAF er jafnframt bent á að hika ekki við að benda á eigið fyrirtæki!

Það er von sjóðsstjórnar og stjórnar SAF að félagsmenn taki virkan þátt í leit að verðugum verkefnum þar sem nýsköpun og öflug vöruþróun er lykilþáttur í framförum í íslenskri ferðaþjónustu. 

Sendu okkur tilnefningu

Sendu okkur póst á netfangið saf@saf.is þar sem fram kemur:

  • Nafn fyrirtækis / verkefni
  • Rökstuðningur tilnefningarinnar, að lágmarki um 200 orð
  • Viðhengi, ef þú vilt að það fylgi með rökstuðningnum þínum.